Hrói Höttur og Seðlagengið

Sönn saga úr banka í dag:

- Hérna er ég með 7350 í sænskum krónum, geturðu skipt því fyrir mig í íslenskar krónur?

- Sjálfsagt, á genginu 15,977 verður það 117,430 íslenskar krónur.

- .....en kaupgengið á sænskum krónum er 16,34!??

- aha, já...en það er ekki notað ef við erum að kaupa seðla... þá notum við Seðlagengið! Wink

Ég hafði aldrei heyrt talað um neitt Seðlagengi áður og það fyrsta sem mér datt í hug voru einhverjir bíræfnir útrásarvíkingar sem hefðu stofnað gengi til að arðræna löglega þá fáu ferðalanga sem dirfðust að koma með skítugu seðlana sína í fínu bankana þeirra á meðan almenningur væri upptekinn við að lesa um hver ætti stærsta jeppann/sumarbústaðinn/villuna/konuna í Séð & Heyrt.

Ég leit í kringum mig en sá hvorki ljósmyndara né jakkaklædda útrásarvíkinga neins staðar þannig að ég bað um nánari útskýringu frá sætu stelpunni sem var að afgreiða mig.

Seðlagengi er sem sé hentigengi sem er alltaf ennþá lægra en venjulega gengið.  Nema ef þú ert að kaupa....þá er það nátturulega meira sem þú borgar fyrir að kaupa seðlana.

Ég bað í snarhasti um að fá seðlana mína til baka og fór heim með þá og stakk þeim undir koddann minn....aftur.

Mottó dagsins: Notið kort - annars rænir Seðlagengið peningunum ykkar!! Devil


mbl.is Lán mögulega áfram verðtryggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Weapons of Mass Destruction in Iceland?

In a startling article in the well-known and respected magazine "Gun Toting Madmen", renowned weapons expert Elmer P. Fudd recently revealed that the small nation of Iceland that perches on a small rock in the middle of the North Atlantic has been able to develop weapons of mass destruction without attracting the attention of anyone!

By cunningly cultivating hot springs, soap and magma (See http://www.fotopedia.com/en/Geysir) - the Icelandic scientists have been able to coax volcanic eruptions to occur almost at will!!!

WIth this, the nation places itself among terrorist nations with WMD's like North Korea, Iran and France.

Fascist dictatorships like the UK, Italy and Iraq have been invaded for less.


AGS frestar lánafyrirgreiðslum vegna síendurtekinna eldgosa á Íslandi

Að sögn Dr. Geerhart Keingeld, talsmanns AGS í Póllandi er um að ræða viðbrögð við eindregnum brotavilja Íslenskra stjórnvalda gagnvart alþóðlegum samþykktum um losun gróðurhúsalofttegunda sem brjóta klárlega í bága við bæði Kyotosáttmálann og líka hitt draslið sem var í Kaupmannahöfn í fyrra en enginn skrifaði undir.

Herra Keingeld afhenti líka eftirfarandi yfirlýsingu varðandi málavexti:

"We have repeatedly expressed our concerns to the Icelandic government concerning that they have not done anything to stop this constant volcanic activity from spreading.  In spite of that, no steps have been taken by the Icelandic authorities to reduce the risk of an eruption of cataclysmic proportions which would no doubt also spew out dangerous gases into the atmosphere.

This is simply not acceptable and the Icelandic nation must accept the responsibility for their own volcanoes and act immediately to make sure that no further eruptions take place.

The first steps would be to acknowledge that the ash being spread around the world at this point is in fact Icelandic in origin and that it is the responsibility of Iceland to clean it up or fully repay any efforts by foreign governments to clean up said ash.

Barring any response from the Icelandic government we will have no option but to view this as a terrorist activity - and then you'll have more than just Now Now Brown Cow and his Darling to deal with.

Thank you.... IMF out!


mbl.is Norræn heilbrigðisyfirvöld í viðbragðsstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað myndir gerast ef allir Kínverjar hringdu myndsamtal í einu?

1. meirihluti góðmálmbirgða jarðar myndu klárast þar sem að þyrfti að framleiða 1.2 milljarða tækja sem gætu tekið á móti myndsamtali.  Gerum ráð fyrir að þeir myndu hringja eingöngu í aðra Kínverja, annars erum við að tala um 2.4 milljarða tækja.

2. rafmagnið sem færi í að a) hringja og b) skanna samtölin af stjórnvöldum myndi krefjast virkjanaframkvæmda sem myndu ekki klárast næstu 20 árin a.m.k.

....svo er eins gott að þeir hoppi ekki allir af kæti yfir samtalinu í leiðinni - annars myndi sennilega möndull jarðar skekkjast :)


mbl.is Ofurbeinar munu gerbreyta netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

I'm a KB monkey

Nei, ekkert með Kaupþing Banka að gera.... KB stendur fyrir Microsoft Knowledge Base.

...einn vinnufélagi benti mér á að KB vitnar í Technet blogginn hjá mér Smile 

 http://support.microsoft.com/kb/977510


Bin Laden Íslandsvinur

Frábær hugmynd..sýnir hversu mikla
umhyggju forsvarar Global E
conomics bera fyrir hagsmunum Íslands.
kannski væri samt betra ef einhver af

Yngri kynslóðinni myndi skoða málið betur
og e.t.v. setja saman smá
umfjöllun um t.d. Bláa Lónið sem myndi fylgja með?


mbl.is Leggur til að fangar verði fluttir til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Google Chrome?

Hmmm, starfsfólk Google notar augljóslega Internet Explorer en ekki Google Chrome....

Annars væri ekki verra að fá link í þessar tilvitnanir frá "þýskum stjórnvöldum" þannig að fólk geti kynnt sér málið sjálft.

Árásirnar voru gerðar með s.k. 'phishing' tækni og eitrun á leitarniðurstöðum og var beint sérstaklega að útvöldum starfsmönnum innan c.a. 30 fyrirtækja, þ.á.m. Google og Adobe.
Það þýðir með öðrum orðum að árásirnar hafa verið undirbúnar í langan tíma og persónulegum upplýsingum um fólk í lykilstöðum hefur verið safnað til að geta siktað út ákveðin skotmörk.

Orðrómar eru í gangi um að til að komast yfir það magn af persónulegu upplýsingum sem þurfti hafi falskir netbeinar verið settir í umferð á hnútpunktum, t.d. frá Cisco og notaðir til að skanna traffík frá skotmörkunum fyrir árásina.

"Fake" Cisco routerar:
http://www.andovercg.com/services/cisco-counterfeit-wic-1dsu-t1.shtml

Attackers targeting .edu sites in SEO Poisoning Campaigns
http://threatpost.com/en_us/blogs/attackers-targeting-edu-sites-seo-poisoning-campaigns-012610

Flaws In The 'Aurora' Attacks
http://www.darkreading.com/database_security/security/attacks/showArticle.jhtml?articleID=222500010&cid=RSSfeed_DR_News

Alleged China cyberattacks could test US Cybersecurity policy
http://www.computerworld.com/s/article/9144440/Alleged_China_attacks_could_test_U.S._cybersecurity_policy?source=toc


mbl.is Vara við Internet Explorer
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Iceshave

"All it takes for evil to thrive is for good men to do nothing."

It is the few rotten apples that sully the name of the many - similar to Germany in the 1930's the nation became mesmerized by the success of what was essentially a small group of hard-core financial privateers that were able to control or assert influence to the point where voicing doubts about their actions became tantamount to heresy.

At some point, the financial feeding frenzy had developed such an appetite that native capital alone could no longer sustain it and the banks reached out to foreign investors, promising returns far beyond anything others were offering.

Ultimately, the private banks had gotten so big that they dwarfed the BNP of the entire nation of 300.000 many times over.

The emperor wasn't wearing any clothes - but nobody cared as long as he had money or credit.

By the end of 2007, it had gotten to the point where reason had completely left the building and cash had became a religion in itself.  Those who had it, spent it - those who didn't have it borrowed and spent it.

Hindsight is 20/20 - in retrospect it should have been obvious that this was a house of cards that would collapse in the next financial breeze and that any state guarantee - implicit or otherwise - would be impossible to produce.


The damage is done - what remains is damage control and minimizing as much as possible the financial loss that will ultimately affect both local and foreign investors.

However, killing the patient to accomplish the cure will not help anyone.


Verstu þýðingar Íslandssögunnar...

Aftan af videospólu:

 "John Rambo was a Vietnam Veteran....blablabla, they went too far, blablabla."

Íslensk þýðing:

"John Rambo er dýralæknir frá Víetnam" Whistling


TechED 2009 í Berlín

Þessa vikuna er ég í Berlín - nánar tiltekið á TechED 2009.

Í gær var ég minntur á að greiðslukort teljast ekki gjaldgeng í leigubílum hér á meginlandinu þannig að við enduðum á því að keyra nokkra hringi aukalega um Alexanderplatz að leita að peningasjálfsala nálægt hótelinu.

Allaveganna, hótelið var í góðu lagi a.m.k. og góður nætursvefn á 20. hæð fylgdi með sjónvarpsturninn í Berlín í augsýn út um gluggann. 

Hins vegar komst ég að því um morguninn að þó að allt sýningarkomplexið hérna heiti "Messe" þá er ekki mikið sameiginlegt með Messe Sud og Messe Nord....eins og hjálpsamur öryggisvörður á SAP 2009 Expo benti mér á og gaf mér leiðbeiningar um 10 mínutna spásseringu á réttan stað :)

30 mínútna göngutúr seinna komst ég loksins í mark og biðröð eftir að komast í aðra biðröð.

...bitur, ég?  Nei, ég er ekki bitur....bara vitur... eða a.m.k. vitrari en ég var í morgun InLove

"Ich bin ein Berliner"...gut zum Essen.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ingólfur Arnar Stangeland

Höfundur

Ingólfur Arnar Stangeland
Ingólfur Arnar Stangeland

Íslendingur og Svíi áður í útlegð í Stokkhólmi en nú í Reykjavík.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Laws
  • Laws
  • ...08773_set_a
  • Capture
  • Capture

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 737

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband