Ísland+EU==Ekkert Cheerios

Hafandi búið í EU-landi í 7 ár þá get ég bent á allaveganna einn neikvæðan hlut sem EU-aðild hefur með sér.

Cheerios er með of mikið af járni miðað við EU-staðla og er því ekki leyfilegt að selja það í venjulegum verslunum í Svíaríki.

.... s.s. aðild að EU myndi þýða að þúsundir Íslendinga þyrftu að skipta um morgunmat Woundering

 Kannski þess vegna sem dömurnar á Blóðbankanum voru alltaf svo ánægðar með járngildið í blóðinu hjá mér þar sem ég borðaði Cheerios á hverjum morgni í yfir 25 ár LoL

 

 


mbl.is Eva Joly: Ísland á að ganga í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Já, akkúrat, ekkert Cheerios, ömurlegt.   Og heldur ekkert fullveldi. 

Elle_, 17.10.2010 kl. 21:33

2 identicon

Nestle er með framleiðslurétt á Cheerios í Evrópu.

Ef maður tekur nestle Cheerios og ber saman við General Mills Cheerios sér maður ástæðuna fyrir því hví ESB bannar amerísku útgáfuna, þar eru þó nokkur mörg vítamín og steinefni sem eru um 200-500% af ráðlögðum dagskammti (RDS) í 100 gr. Þá erum við að tala um að maður eigi eftir að borða nokkrar máltíðir til viðbótar yfir daginn!!

ESB er einmitt þetta mál í hnotskurn, þetta eru stærstu hagsmunasamtök neytenda í heimi. Meira að segja Microsoft hefur þurft að lúta í lægra haldi fyrir ESB þegar einokunin hjá hugbúnaðarframleiðandanum náði hámarki hér um árið.

Hver er aftur staða okkar neytenda hér heima á Íslandi? :)

Jón Sigurðsson (IP-tala skráð) 17.10.2010 kl. 21:44

3 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Góður punktur hjá þér, og ég hef farið með Cheerios í farangri til Danmörk vegna þessa og það var ekkert sett út á það í Tolli...

Svo þá segja þeir sem borða Cheerios ekkert ESB vegna þess að það er ekki selt Cheerios í ESB ríkjum. Vonandi að það sé morgunmatur sem flestra Íslendinga segi ég bara...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 17.10.2010 kl. 23:04

4 Smámynd: Elle_

Evrópusambandið er engin hagsmunasamtök neytenda, Jón Sigurðsson.  Samband sem vill kúga íslenska þjóð til að borga ICESAVE.  500 - 1000 MILLJARÐA skuld sem er ekki okkar.   Hverju öðru geturðu búist af slíkum samtökum?

Elle_, 18.10.2010 kl. 12:11

5 Smámynd: Ingólfur Arnar Stangeland

Í raun og veru er það ekki aðalmálið varðandi EU-aðild, aðild að EU hefur kosti og galla fyrir Ísland eins og allt annað.

Andstæðingar EU-aðildar tala aldrei um kostina, fylgjendur tala aldrei um gallana.

Ég vil sjá lista yfir Pros/Cons - helst í Excel skjali :)

Ingólfur Arnar Stangeland, 18.10.2010 kl. 13:21

6 Smámynd: Elle_

ICESAVE er grafalvarlegt mál.  Og EU hefur sýnt sitt ofurvald þar. 

Elle_, 18.10.2010 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Arnar Stangeland

Höfundur

Ingólfur Arnar Stangeland
Ingólfur Arnar Stangeland

Íslendingur og Svíi áður í útlegð í Stokkhólmi en nú í Reykjavík.

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Laws
  • Laws
  • ...08773_set_a
  • Capture
  • Capture

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband